|
Felder Trésmíðavélar
Felder verksmiðjurnar eru staðsettar í Austurríki, nánar tiltekið í Hall í Tirol. Felder framleiðir trésmíðavélar í öllum stærðarflokkum.
Felder framleiðir Hammer sem eru vélar sem henta mjög vel fyrir minni verkstæði eða eintaklinga.
Felder trésmíðavélar eru í þremur stærðum sem eru 500, 700 og 900 línurnar.
Felder framleiðir einnig Format4 sem eru stærstu vélarnar hjá þeim. Þessar vélar standast allar þær kröfur sem stærstu verkstæði landsins hafa í huga.
Hammer
Hammer er línan frá Felder. Hammer hefur sambyggðar vélar sem og sjálfstæðar plötusagir, fræsara eða sambyggðan afréttara og þykktarhefil.
Smellið á myndina hér að neðan til að sjá hvað Hammer hefur uppá að bjóða.

Þú getur nálgast bækling í Ásborg á smiðjuvegi 11 (Gul gata). Hafir þú ekki tök á að heimsækja okkur, sendu okkur línu og við sendum þér bækling um hæl.
Felder 500
Felder 500 er ný lína frá Felder sem gerir okkur kleyft að bjóða nettar trésmíðavélar sem hafa x-Roll sleðakerfið sem stærstu vélarnar frá Felder hafa að geyma. Pottstálið í borðunum og mótorarnir eru jafn vandaðir og í þeim stærstu.
Smelltu á myndina til að sjá vélarnar sem 500 serían hefur að geyma.

Bæklingur yfir 500 seríuna bíður þin í verslun okkar eða smelltu hér til að fá hann sendan.
Felder 900
Felder 900 serían eru vélar sem henta meðalstórum verkstæðum og eru þetta vélar sem geta verið með rafmagn í öllu og samt á mjög viðráðanlegu verði. Felder 900 serían eru mjög vel byggðar vélar tilbúnar að vinna allan daginn fyrir þig. Í 900 seríunni eru líka til kantlímingarvélar.
Smellið á myndina hér að neðan til að sjá vélarnar í 900 seríunni.

Verið velkomin í sýningarsal okkar og fáið bækling með ykkur. Ef þú hefur ekki tök á að heimsækja okkur þá getur þú fengið sendan bækling til þín.
| Format4 |
|
|
| |
|
| |
|
Format 4
Felder framleiðir Format4 sem eru stærstu trésmíðavélarnar hjá Felder. Þetta eru vélar sem koma standard með rafmagni í ýmsum aðgerðum og er hægt að uppfæra það að vild. Þessar vélar standast allar þær kröfur sem stór verkstæði og framleiðslufyrirtæki gera til slíkra véla. Format4 eru vélar sem skila mjög góðri vinnu og gera kaupandann ánægðan og ekki skemmir verðið fyrir.
Smelltu á myndina til að sjá hvaða vélar Format4 hefur uppá að bjóða.

Lítið við hjá okkur í Ásborg og kynnið ykkur ágæti Format4 vélanna og fáið bækling með ykkur heim. Ef þú kemst ekki að heimsækja okkur þá getum við sent þér bækling svo endilega hafðu samband.
|

|